Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 20. janúar 2015 14:30
Magnús Már Einarsson
Swansea skiptir um bakvörð - Naughton að koma
Kyle Naughton.
Kyle Naughton.
Mynd: Getty Images
Swansea City er við það að kaupa bakvörðinn Kyle Naughton frá Tottenham á fimm milljónir punda.

Naughton á að fylla skarð vinstri bakvarðarins Neil Taylor sem er væntanlega á förum frá Swansea.

Crystal Palace og West Bromwich Albion hafa bæði áhuga á að fá Taylor í sínar raðir.

Taylor hefur verið fastamaður hjá Swansea í vetur eftir að Ben Davies fór til Tottenham.

Naughton mun nú fylla skarð hans en Swansea hafði einnig kannað möguleikann á að fá sænska vinstri bakvörðinn Martin Olsson frá Norwich.
Athugasemdir
banner
banner