Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 20. janúar 2017 08:30
Stefnir Stefánsson
Adebayor: Arsenal er bara Özil og Alexis
Adebayor er umdeildur
Adebayor er umdeildur
Mynd: Getty Images
Fyrrum framherji Arsenal, Emmanuel Adebayor sem hefur meðal annars leikið með Monaco, Manchester City, Real Madrid, Tottenham og Crystal Palace lét stór orð falla um sitt gamla félag.

Adebayor sagði í viðtali að Arsenal liðinu skorti breidd í sínum leikmannahópi og benti hann á að þeir treysti of mikið á þá félaga Mesut Özil og Alexis Sanchez.

„Ef þú lýtur á Chelsea, ef að Hazard meiðist þá hafa þeir Willian. Ef að Willian myndi meiðast einnig þá gætu þeir notað Moses þarna framar. Vandamál Arsenal er að þeir eru bara Özil og Alexis ef annar þeirra meiðist þá eru þeir í töluverðum vandræðum."

Sagði framherjinn umdeildi en hann er ekki sá vinsælasti meðal stuðningsmanna Arsenal. En frægt er atvik sem gerðist í leik liðsins gegn Manchester City. Þá skoraði Adebayor fyrir City og hljóp yfir allan völlinn til að fagna fyrir framan stuðningsmenn Arsenal. Þá spilaði hann einnig fyrir Tottenham og ekki var það til að auka vinsældir stuðningsmanna Arsenal.






Athugasemdir
banner
banner
banner