Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 20. janúar 2017 17:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alfons Sampsted til Norrköping (Staðfest)
Alfons er farinn til Svíþjóðar.
Alfons er farinn til Svíþjóðar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik hefur samþykkt tilboð frá sænska úrvalsdeildarklúbbnum Norrköping í bakvörðinn unga Alfons Sampsted. Þetta kemur fram á Blikar.is.

Alfons hefur þegar skrifað undir samning við sænska liðið og mun halda utan til æfinga með liðinu á sunnudaginn.

Alfons, sem er 18 ára gamall, hefur staðið sig einstaklega vel með Breiðablik undanfarin misseri. Hann á nú þegar að baki 27 leiki í Pepsi-deildinni. Þar að auki lék hann sem lánsmaður með Þór í 1. deildinni árið 2015 og stóð sig vel.

Alfons hefur leikið 20 landsleiki með U-17 og U-19 ára landsliðum Íslands og var nýlega valinn til æfinga með U-21 árs landsliði Íslands.

„IFK Norrköping er frábær klúbbur sem ég heimsótti, æfði og keppti með í nóvember á síðasta ári.Það er afar ánægjulegt að Breiðablik og IFK Norrköping hafi náð saman um félagaskiptin," sagði Alfons um félagsskiptin.

„Ég er afar þakklátur fyrir árin hjá uppeldisfélaginu mínu, Breiðabliki, þar hef ég notið leiðsagnar frábærra þjálfara allt frá því að ég steig mín fyrstu skref í 8. flokki. Umgjörðin öll hjá Breiðabliki hefur reynst mér vel og langar mig að þakka sérstaklega öllu starfsfólkinu sem vinnur í kringum félagið og liðsfélögunum."

„Arnar Grétarsson og hans hópur sýndu mér mikið traust þegar þeir tóku mig inn í æfingahóp með meistaraflokki þegar ég var aðeins 16 ára gamall. Móttökur meðal leikamanna og þeirra sem standa að meistaraflokki hafa verið einstakar. Ég er þakklátur Arnari fyrir að hvetja mig til að fara norður á lán til að spila með Þór. Þar öðlaðist ég frábæra reynslu og hvet ég alla unga fótboltamenn til þess að gefa neðri deildunum tækifæri ef það stendur til boða."

„Mínúturnar og leikirnir sem ég fékk í Peps-deildinni síðasta sumar voru lærdómsríkar, stökkið að fara úr 1. deild og upp í Pepsi deild var mikið og maður fann að þar átti maður margt ólært."

„Blikarnir verða með sterkan hóp næsta sumar, mitt hjarta verður alltaf hjá Breiðablik, klúbburinn, starfsfólkið, Kópacabana og allir stuðningsmennirnir hafa hjálpað mér að komast í þessa stöðu og fyrir það er ég þakklátur."

„Framundan er að æfa af fullum krafti og berjast fyrir sæti mínu í nýju liði," sagði Alfons að lokum.
Athugasemdir
banner
banner