Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 20. janúar 2017 19:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: BBC 
Deulofeu lánaður til AC Milan (Staðfest)
Deulofeu er farinn til Ítalíu.
Deulofeu er farinn til Ítalíu.
Mynd: Getty Images
Ítalska liðið AC Milan hefur gengið frá lánssamningi við Gerard Deulofeu, en hann kemur til liðsins frá Everton. Hann mun klára tímabilið í Mílanó-borg.

Everton hafnaði upphaflega lánstilboði frá Milan í hinn 22 ára gamla Deulofeu, en að lokum komust liðin að samkomulagi.

Middlesbrough, sem er nýliði í ensku úrvalsdeildinni, var einnig sagt áhugasamt um þennan fyrrum leikmann Barcelona.

Deulofeu hefur einungis spilað 13 leiki á tímabilinu, en hann hefur ekki átt fast sæti í liði Everton undir stjórn Ronald Koeman.

Deulofeu kom til Everton frá Barcelona á láni sumarið 2013. Árið 2015 keypti Everton hann síðan á 4,3 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner