Fótbolti.net mótið B-deild - Riðill 2
Grótta 2 - 2 Haukar
1-0 Pétur Steinn Þorsteinsson ('35 )
1-1 Björgvin Stefánsson ('51 )
2-1 Bessi Jóhannsson ('55 )
2-2 Björgvin Stefánsson ('71 )
Grótta 2 - 2 Haukar
1-0 Pétur Steinn Þorsteinsson ('35 )
1-1 Björgvin Stefánsson ('51 )
2-1 Bessi Jóhannsson ('55 )
2-2 Björgvin Stefánsson ('71 )
Grótta og Haukar gerðu 2-2 jafntefli í B-deild Fótbolta.net mótsins á Gróttuvelli í kvöld. Um leik í riðli 2 var að ræða.
Heimamenn í Gróttu voru 1-0 yfir í hálfleik, en markið skoraði Pétur Steinn Þorsteinsson úr vítaspyrnu á 35. mínútu.
Í byrjun seinni hálfleiks jafnaði Björgvin Stefánsson fyrir Hauka, en Gróttumenn voru ekki lengi að ná forystunni aftur.
Björgvin Stefánsson jafnaði þó aftur fyrir Hauka á 71. mínútu, en ekki voru fleiri mörk skoruð eftir það, lokatölur 2-2.
Þetta var fyrsti leikur beggja liða í mótinu. Grótta mætir HK næst og Haukar leika gegn Njarðvík í sínum næsta leik.
Athugasemdir