banner
   fös 20. janúar 2017 18:16
Ívan Guðjón Baldursson
Gerrard til Liverpool (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard hefur verið ráðinn í unglingastarf Liverpool þar sem hann mun gegna ýmsum hlutverkum samkvæmt yfirlýsingu frá félaginu.

Gerrard er ein mesta goðsögn sem hið sögufræga félag Liverpool hefur alið af sér og er dáður og virtur af atvinnumönnum um allan heim.

„Mér finnst ég ekki þurfa að útskýra hvað þessi klúbbur þýðir fyrir mig," sagði Gerrard.

„Ég er ekki að taka við þessu starfi af einhverri sýndarmennsku, ég get boðið upp á margt og mun leggja mig allan fram í þetta verkefni.

„Þetta gefur mér frábært tækifæri til að læra á innviði félagsins og er góð byrjun fyrir hugsanlega framtíð sem þjálfari."


Starf Gerrard innan Liverpool er erfitt að skilgreina en hann mun eingöngu starfa með ungum leikmönnum félagsins
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner