Stuðningsmenn Arsenal vilja gera allt til þess að halda stjörnuleikmanninum, Alexis Sanchez, hjá félaginu.
Sanchez hefur verið besti leikmaður Arsenal á þessu tímabili, en samningur hans rennur út árið 2018. Viðræður hafa gengið hægt fyrir sig, en stuðningsmenn Arsenal bíða spenntir eftir fréttum.
Sumir vilja meina að hundurinn sé besti vinur mannsins og Sanchez er svo sannarlega sammála þeirri ályktun.
Alexis á tvo hunda sem heita Atom og Humber en þeir eru í miklu uppáhaldi hjá honum. Hundarnir hans Sanchez eiga sína eigin Instagram-síðu og þá hafa þeir leikið í auglýsingu með honum.

Í síðustu viku hófu stuðningsmenn Arsenal söfnun til þess að fá borða á Emirates-leikvanginn með mynd af Sanchez og hundunum.
Stuðningsmannahópurinn REDaction Gooners settu upp styrktarsíðu og var peningurinn ekki lengi að safnast.
Nú er borðinn kominn upp á vellinum og má sjá mynd af honum hér að neðan.
Thoughts? 👀 pic.twitter.com/YlxVadDETI
— Sultan (@WMFormation) January 20, 2017
Athugasemdir