Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 20. janúar 2018 22:30
Gunnar Logi Gylfason
Coutinho mætti á fyrstu æfinguna með Barcelona
Gæti náð bikarleiknum gegn Espanyol
Coutinho gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Barcelona í vikunni
Coutinho gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Barcelona í vikunni
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho mætti á sína fyrstu æfingu með Barcelona í dag
eftir að hafa skipt frá Liverpool fyrir tveimur vikum fyrir 142 milljónir punda. Hér að neðan má sjá myndband frá æfingunni.

Hann hefur verið meiddur og mun ekki spila deildarleik gegn Real Betis sem fer fram á morgun.

Ernesto Valverde, þjálfari Barcelona, segir að hann gæti náð að spila seinni leikinn í 8-liða úrslitum spænska konungsbikarsins gegn Espanyol en fyrri leiknum lauk með 1-0 sigri Espanyol.

„Ég vil ekki segja neina nákvæma dagsetningu hvenær meiddir leikmenn koma til baka, en hann er allur að koma til." sagði Valverde.

„Ég veit ekki hvort hann komi í næstu viku en við vonum að hann komi fljótlega. Mögulega a fimmtudaginn [gegn Espanyol]," sagði Valverde þegar hann var enn frekar inntur eftir svörum um hvenær Coutinho gæti spilað sinn fyrsta leik.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner