Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 20. janúar 2018 13:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Faxaflóamótið: Haukar burstuðu Tindastól
Markaskorarar Hauka: Sæunn, Heiða Rakel, Andrea og Hrafntinna.
Markaskorarar Hauka: Sæunn, Heiða Rakel, Andrea og Hrafntinna.
Mynd: Haukar
Tindastóll 1 - 4 Haukar
Mörk Hauka: Andrea Anna Ingimarsdóttir, Sæunn Björnsdóttir, Heiða Rakel Guðmundsdóttir og Hrafntinna Haraldsdóttir.

Hauka unnu Tindastól í Faxaflóamóti kvenna í gærkvöld en leikið var á Gaman Ferða vellinum að Ásvöllum í Hafnarfirði.

Andrea Anna Ingimarsdóttir kom Haukum yfir þegar skammt var til loka fyrri hálfleiks og var hálfleikur varla byrjaður þegar brotið var á Hildigunni Ólafsdóttur, leikmanni Hauka, innan vítateigs. Af punktinum skoraði hin bráðefnilega Sæunn Björnsdóttir.

Heiða Rakel Guðmundsdóttir gerði þriðja mark Hauka eftir góðan sprett og skoraði Hrafntinna Haraldsdóttir fjórða mark Hafnfirðinga með laglegu skoti, staðan orðin 4-0.

Tindastóll klóraði í bakkann með marki undir lokin en lokatölur urðu 4-1. Þetta var fyrsti leikur beggja liða í mótinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner