Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. janúar 2018 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Natasha Anasi framlengir við Keflavík
Natasha Anasi handsalar hér samkomulagið við Jónas Guðna Sævarsson, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Keflavíkur.
Natasha Anasi handsalar hér samkomulagið við Jónas Guðna Sævarsson, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Keflavíkur.
Mynd: Keflavík
Natasha Anasi hefur framlengt saming sinn við knattspyrnudeildar Keflavíkur og verður leikmaður liðsins næstu tvö árin.

Natasha eignaðist barn í júní 2017 og kom því aðeins við sögu í þremur síðustu leikjum Keflavíkur á síðasta tímabili.

Natasha kom til Keflavíkur frá ÍBV fyrir síðasta sumar en í Vestmannaeyjum var hún lykilmaður í vörn liðsins í þrjú sumur og var m.a. valin í lið ársins í Pepsi deildinni sumarið 2016.

„Félagið bindur miklar væntingar til Natasha innan sem utan vallar, en hún mun auk þess að spila með liðinu, koma að þjálfun yngri flokka kvenna. Natasha mun gegna lykilhlutverki hjá Keflavík og vera mikilvægur hlekkur á komandi tímabili. Við fögnum þessum tíðindum og hlökkum til að sjá hana á vellinum í sumar," segir í fréttatilkynningu sem Keflavík sendi frá sér.

Keflavík endaði í fjórða sæti 1. deildar kvenna á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner