„Miðað við dagsetningu og undirbúning okkar þá fannst mér vera stígandi í þessu og ég er bara ánægður með Magnaliðið,“ sagði Páll Viðar Gíslason þjálfari Magna eftir 1-0 tap gegn Þór í Kjarnafæðismótinu í Boganum í kvöld.
„Við fengum á okkur mark sanngjarnt í byrjun þar sem við vorum ekki alveg á tánum fannst mér. Við erum að máta okkur við þessi lið og mér lýst bara vel á hvernig þetta er að þróast, við vorum fannst mér flottir í 70 mínútur.“
„Við spiluðum leik hérna fyrir hálfum mánuði síðan þar sem var 4-0 eftir 20 mínútur, svona svipuð byrjun, þannig að við erum aðeins að reyna að tengja saman góðu hlutina hjá okkur. Ég held að við getum alveg farið með pung inn í þessa leiki og förum svona óhræddir, þetta er náttúrlega hörkulið sem við erum að spila við og klárlega verða Þórsararnir í toppbáráttu þannig að við erum bara á fleygiferð að máta okkur við þessi lið. Svo mætum við Pepsi deildar liðum í Lengjubikar og þetta verður bara veisla fyrir Magnaliðið að gíra sig upp og taka aðeins á því.“
Aðspurður um markmið sumarsins sagði Palli þetta:
„Það er bara að fá geggjað attitude í þetta og Magni að leggja sig 100% fram í alla leiki. Svo vonum við bara að við fáum eitthvað út úr því að skora mörk því að Magnamenn hafa verið gjarnir á að skora mikið af mörkum og kannski á móti að fá svolítið mikið á sig. Við ætlum að reyna að vera ekkert fallbyssufóður, ég get alveg lofað því.“
Viðtalið við Palla má sjá í heild hér að ofan.
Athugasemdir