Víkingur Ólafsvík hefur óvænt fengið Guðmund Reyni Gunnarsson til liðs við sig frá KR.
Guðmudur Reynir tilkynnti síðastliðið haust að hann hefði ákveðið að leggja skóna á hilluna. Honum hefur nú snúist hugur og ákveðið að leika með Ólafsvíkingum í 1. deildinni í sumar.
Guðmundur Reynir hefur fengið félagaskipti í Víking en hann kemur á láni frá KR þar sem hann var ennþá samningsbundinn í Vesturbænum.
Hinn 25 ára gamli Guðmundur hefur skorað átta mörk í 164 deildar og bikarleikjum með KR á ferli sínum og unnið fjölmarga titla.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem Víkingur fær frá KR í vetur en Egill Jónsson og Torfi Karl Ólafsson höfðu einnig farið sömu leið.
Athugasemdir