banner
   þri 20. febrúar 2018 23:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Batshuayi ekki búinn að gleyma Chelsea - Á fullu á Twitter í kvöld
Mynd: Getty Images
Chelsea hafði ekki not fyrir Michy Batshuayi og lánaði hann því til Borussia Dortmund í janúar.

Þrátt fyrir að Chelsea hafi látið hann fara, þá er belgíski framherjinn alls ekki búinn að gleyma félaginu.

Chelsea var að spila gegn Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld og enduðu leikar með 1-1 jafntefli.

Batshuayi fylgist spenntur með og var duglegur að segja frá tilfinningum sínum á meðan leiknum stóð.

Að leik loknum sagði hann: „Stoltur af ykkur strákar. Frábær leikur, áttum betri úrslit skilið."

Hér að neðan má sjá það sem Batshuayi setti inn á Twitter á meðan á leiknum stóð. Batshuayi er duglegur að tísta og er gríðarlega gaman að fylgjast með honum á samfélagsmiðlinum.













Athugasemdir
banner
banner
banner
banner