þri 20. febrúar 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Cech býst ekki við að byrja í úrslitaleiknum
Mynd: Getty Images
Petr Cech, markvörður Arsenal, reiknar með að byrja á bekknum í úrslitum enska deildabikarsins gegn Manchester City á sunnudag.

David Ospina hefur varið mark Arsenal í öllum umferðum í keppninni hingað til og Cech reiknar ekki með að það breytist.

„Það var ljóst frá byrjun að þetta yrði svona. Ég mun vera á svæðinu og styðja liðið en ég reikna ekki með að byrja," sagði Cech.

„Það er alltaf erfitt að horfa á leiki af bekknum eða úr stúkunni ef þú ert ekki í hóp."

„Sem leikmaður þá viltu spila. En þegar þú ert hjá atvinnumanna félagi sem er með 25 topp leikmenn þá þarf stjórinn alltaf að velja leikmenn fyrir hvern leik og þú verður að taka því."

Athugasemdir
banner