Birkir Bjarnason heldur áfram að spila stórt hlutverk hjá Aston Villa. Hann lék allan leikinn á miðju liðsins í kvöld þegar liðið fékk Preston North End í heimsókn á Villa Park í Championship-deildinni.
Villa, sem hefur verið að spila fantavel, lenti þó undir í leiknum og var lengi vel undir, frá 37. mínútu alveg fram á 66. mínútu. Þá jafnaði Lewis Grabban úr vítaspyrnu.
Birkir fékk gult spjald á 22. mínútu.
Aston Villa er í þriðja sæti deildarinnar með 60 stig, einu stigi frá Cardiff sem á leik til góða, á morgun Ipswich. Þau gætu reynst mikilvæg stigin sem fóru forgörðum hjá Villa í kvöld.

Jón Daði Böðvarsson kom ekki við sögu hjá Reading sem gerði jafntefli við Nottingham Forest. Reading er í 18. sæti, Nott. Forest er í 17. sæti og á botninum er Sunderland sem tapaði fyrir Bolton. Útlitið er að vera nokkuð dökkt fyrir Sunderland.
Aston Villa 1 - 1 Preston NE
0-1 Tom Barkhuizen ('37 )
1-1 Lewis Grabban ('66 , víti)
-
Barnsley 1 - 2 Burton Albion
0-1 Jamie Allen ('1 )
0-2 Jacob Davenport ('45 )
1-2 Dani Pinillos ('75 )
Brentford 5 - 0 Birmingham
1-0 Ollie Watkins ('31 )
2-0 Florian Jozefzoon ('41 )
3-0 Neal Maupay ('51 )
4-0 Sjálfsmark ('54 )
5-0 Ollie Watkins ('81 )
Middlesbrough 3 - 1 Hull City
1-0 Rudy Gestede ('16 )
1-1 Evandro Goebel ('41 )
2-1 Patrick Bamford ('45 )
3-1 Rudy Gestede ('58 )
Millwall 2 - 1 Sheffield Wed
0-1 Joey Pelupessy ('42 )
1-1 Lee Gregory ('52 )
2-1 Steve Morison ('63 )
Nott. Forest 1 - 1 Reading
0-1 Omar Richards ('35 )
1-1 Lee Tomlin ('85 )
Sheffield Utd 2 - 1 QPR
1-0 Richard Stearman ('27 )
2-0 John Lundstram ('50 )
2-1 Luke Freeman ('63 )
Bolton 1 - 0 Sunderland
1-0 Zach Clough ('17 )
Athugasemdir