Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 20. febrúar 2018 21:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Eiður glaður á Brúnni - Hvaða lið styður hann?
Eiður er fyrrum leikmaður Chelsea og Barcelona.
Eiður er fyrrum leikmaður Chelsea og Barcelona.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Eiður Smári Guðjohnsen, markahæsti leikmaðurinn í sögu íslenska landsliðsins, er staddur á Stamford Bridge í Lundúnum þar sem hann fylgist með Chelsea og Barcelona etja kappi í fyrri leik sínum í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Eiður ber taugar til beggja liða enda spilaði hann með þeim báðum á glæstum ferli sínum.

Fyrir leik spurði Eiður fylgjendur sín á Twitter að því hvoru liðinu hann ætti að halda með.

Eiður er á vellinum í kvöld en hann er sérstakur gestur hjá Chelsea, ásamt Þjóðverjanum Michael Ballack. Staðan í hálfleik var 0-0 og virtist Eiður nokkuð sáttur með það af myndinni, sem Chelsea setti inn á Twitter í hálfleik, að dæma.

Síðan þá er Willian búinn að skora fyrir Chelsea og er staðan 1-0.

Myndina sem Chelsea setti inn af Eiði er hér að neðan.






Athugasemdir
banner
banner