Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 20. febrúar 2018 13:09
Magnús Már Einarsson
Semedo réðst á mann og læsti hann inni
Ruben Semedo (til vinstri) í baráttu við Luis Suarez.
Ruben Semedo (til vinstri) í baráttu við Luis Suarez.
Mynd: Getty Images
Ruben Semedo, varnarmaður Villarreal, hefur verið handtekinn samkvæmt fréttum frá Spáni. Semedo og tveir aðrir menn eru sakaðir um líkamsárás.

Þeir eru sagðir hafa ráðist á annan mann og síðan læst hann inni í herbergi á heimili Semedo. Því næst fóru mennirnir inn í íbúð mannsins þar sem að þeir stálu pening og hlutum.

Semedo og mennirnir eru einnig sakaðir um að hafa hótað manninum með byssu.

Maðurinn sem varð fyrir árásinni var meðal annars meiddurá ökkla þegar hann kom á lögreglustöð í Valencia til að leggja fram kæru.

Semedo er 23 ára gamall varnarmaður frá Portúgal en hann kom til Villarreal frá Sporting Lisabon síðastliðið sumar.

Hann hefur áður komist í vandræði utan vallar en hann hefur verið sakaður um að hafa ráðist á mann með flösku auk þess sem hann ógnaði öðrum manni með byssu á skemmtistað.
Athugasemdir
banner
banner
banner