Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 20. mars 2017 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Celtic einum sigri frá titlinum
Rodgers rétt missti af Englandsmeistaratitlinum en er að verða Skotlandsmeistari.
Rodgers rétt missti af Englandsmeistaratitlinum en er að verða Skotlandsmeistari.
Mynd: Getty Images
Skosku meistararnir í Celtic eru aðeins einum sigri frá því að verja meistaratitilinn eftir 2-1 sigur gegn Dundee í úrvalsdeildinni í gær.

Celtic er með 25 stiga forskot á toppi deildarinnar og dugir þrjú stig til að gulltryggja enn einn meistaratitilinn. Celtic hefur ekki tapað deildarleik á tímabilinu og gæti tryggt titilinn gegn Hearts 2. apríl nstkomandi.

Celtic hefur styrkt leikmannahóp sinn umtalsvert undanfarið, en meðal leikmanna liðsins eru Scott Sinclair og Moussa Dembele. Brendan Rodgers er stjóri liðsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner