Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 20. mars 2018 12:30
Magnús Már Einarsson
Arnór Smára skoraði fernu með varaliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Smárason skoraði fernu með varaliði Hammarby í 7-2 sigri á Sirius í gær.

Arnór er að stíga upp úr meiðslum og því spilaði hann þennan leik með varaliðinu. Hann skoraði tvö mörk í sitthvorum hálfleiknum.

Arnór var ekki valinn í íslenska landsliðshópinn fyrir komandi leiki gegn Mexíkó og Perú.

„Við vitum nákvæmlega hvað við höfum í Rúnari Má (Sigurjónsson) og töldum að það væri mikilvægara að skoða aðra í þessu verkefni og það er sama með Arnór Smárason. Þeir eru ekkert út úr möguleikanum í lokahópnum þó þeir séu ekki valdir hér," sagði Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari eftir valið á hópnum á föstudaginn.

Arnór hefur verið af og til í íslenska landsliðshópnum undanfarin ár en hann var í hópnum í Katar í nóvember í fyrra sem og í Indónesíu í janúar.
Athugasemdir
banner
banner