Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 20. mars 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Barcelona aftur með fótboltaskóla á Íslandi
...um leið og sumarfríið byrjar - Nú í Smáranum í Kópavogi
Frá skólanum árið 2016.
Frá skólanum árið 2016.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Í þriðja sinn býður Futbol Club Barcelona í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands upp á fótboltaskóla hér á Íslandi.

Fótboltaskólinn verður á æfingasvæðinu við Kópavogsvöll 8.-12. júní, bæði fyrir pilta og stúlkur, sem þó munu æfa í sitt hvoru lagi. Honum lýkur með hófi þar sem góðir gestir frá Barcelona mæta.

Skráning í fótboltaskólann, sem ætlaður er börnum á aldrinum 10-16 ára, er nú þegar hafin á skráningarsíðu Knattspyrnuakademíu Íslands:

Reiknað er með að færri komist að en vilja og þess vegna eru forráðamenn hvattir til að skrá börnin sín
sem fyrst.

Allir þátttakendur munu fá til eignar Nike æfingagalla og fótbolta og boðið er upp á systkinaafslátt.

„Árið 2016 valdi FCB, eitt öflugasta íþróttafélag heims, Ísland til að bjóða eingöngu stúlkum, í fyrsta sinn, upp á æfingabúðir þar sem reyndir þjálfarar félagsins þjálfuðu þátttakendur eftir hinu fræga æfingakerfi Barça og miðluðu um leið þekkingu sinni til íslenskra þjálfara. Í fyrra ákvað FC Barcelona, í samvinnu við Knattspyrnuakademíu Íslands, að bjóða einnig upp á æfingar fyrir íslenska pilta á aldrinum 10-16 ára. Gerður var góður rómur að fótboltaskólanum og bæði þátttakendur og foreldrar þeirra lýstu yfir mikilli ánægju," segir í fréttatilkynningu.
Athugasemdir
banner
banner