Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 20. mars 2018 18:00
Magnús Már Einarsson
Liðsfélagar reknir út af fyrir að slást
Mynd: Getty Images
Pierre-Yves Polomat og Michael Barreto, leikmenn Auxerre, voru báðir reknir af velli í 4-1 tapi gegn Quevilly Rouen í frönsku B-deildinni á föstudaginn.

Polomat og Barreto fóru að slást þegar níu mínútur voru eftir af leiknum og þeir voru báðir reknir af velli.

Auxerre ætlar að refsa þeim en þeir þurfa að útskýra mál sitt fyrir forráðamönnum félagsins.

Atvikið minnti á það þegar liðsfélagarnir Kieron Dyer og Lee Bowyer slógust í leik Newcastle og Aston Villa árið 2005.

Hér að neðan má sjá Polomat og Barreto slást á föstudaginn.



Athugasemdir
banner
banner
banner