Memphis Depay segist vilja vera einn af þeim allra bestu. Memphis var keyptur til Manchester United árið 2015 en sýndi ekki sýnar bestu hliðar þar og var seldur til Lyon í Frakklandi í fyrra.
Hjá Lyon hefur Memphis hefur verið á fínu róli í frönsku deildinni. Hann gefur skorað tíu mörk og lagt upp sex í 20 leikjum á þessu tímabili.
Lengi var talað um Memphis sem einn af vonarstjörnum heimsins. Núna er hann orðinn 24 ára.
„Auðvitað vill ég verða sá besti í heimi. Ég vill spila á móti bestu liðum og bestu leikmönnunum. Ég veit ekki alveg hvað ég þarf að bæta í mínum leik til að ná þessum hæðum.," sagði Memphis í samtali við frönsku sjónvarpsstöðina Canal +.
,Ég er ekki að reyna vera hrokafullur þegar ég segi að mig vantar ekki gæðin. Það sem ég þarf að bæta er líklega stöðuleikinn."
Athugasemdir