Portúgalinn Cristiano Ronaldo hefur átt magnaða byrjun á árinu 2018 og raðað inn mörkum.
Ronaldo, sem hefur unnið Gullknöttinn 5 sinnum, hefur skorað 21 mark í 13 leikjum það sem af er árinu en það er hans besta markaskorun í upphafi árs á hans ótrúlega ferli.
Þrátt fyrir erfiða byrjun á tímabilinu hefur Ronaldo nú skorað 37 mörk í öllum keppnum eftir fernu gegn Girona um síðustu helgi.
Ronaldo hefur aldrei skorað fleiri mörk fyrir 20. mars. Árið 2013 skoraði hann 20 mörk á jafn löngum tíma. Það gerði hann þó í 17 leikjum.
Hans besti árangur hjá Manchester United á sama tíma voru 15 mörk í 15 leikjum árið 2008.

Leikir Mörk
2018 13 21
2017 15 10
2016 14 15
2015 14 9
2014 16 14
2013 17 20
2012 17 17
2011 17 12
2010 11 9
2009 17 8
2008 15 15
2007 14 6
2006 12 6
2005 19 7
2004 11 1
2003 6 0
Athugasemdir