Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 20. apríl 2014 13:30
Daníel Freyr Jónsson
Ardan Turan verður með gegn Chelsea
Ardan Turan.
Ardan Turan.
Mynd: Getty Images
Tyrkneski landsliðsmaðurinn Ardan Turan hefur jafnað sig af meiðslum sínum og verður hann klár þegar Atletico Madrid tekur á móti Chelsea á þriðjudag.

Liðin mætast þar í fyrri undanúrslitaleik liðana í Meistaradeild Evrópu, en Turan hefur ekki leikið með Atletico undanfarnar þrjár vikur.

Turan meiddist í fyrri leik Atletico gegn Barcelona í 8-liða úrslitum keppninar en það kom ekki að sök þar sem Atletico vann síðari leikinn og komst áfram.

Í tilkynningu frá Atletico kemur fram að engin meiðsli séu í leikmannahópnum og mun Diego Simeone því hafa alla leikmenn liðsins til að velja úr fyrir leikinn á þriðjudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner