Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 20. apríl 2014 21:29
Brynjar Ingi Erluson
Arteta missti tönn gegn Hull - Brosti í gegnum sársaukann
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, leikmaður Arsenal á Englandi, varð fyrir óskemmtilegri reynslu í gær er hann missti framtönn í sigri liðsins á Hull City.

Spænski miðjumaðurinn fékk lenti í samstuði við Shane Long, leikmann Hull og missti hann í kjölfarið framtönnina í sér.

Myndavélar á leiknum náðu atvikinu er tönnin flaug upp í loftið en læknir Arsenal hugaði að honum áður en hann skokkaði aftur inn á völlinn.

Hann hafði þó engar áhyggjur af því og er liðið skoraði þá gat hann ekki annað en framkallað bros fyrir myndavélarnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner