Klukkan 15:10 hefst stórleikur Everton og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á Goodison Park.
David Moyes snýr þar aftur á sinn gamla heimavöll í fyrsta sinn síðan hann tók við Rauðu Djöflunum síðasta sumar eftir 11 ára veru hjá Everton.
Moyes heldur þeim Shinji Kagawa og Juan Mata saman í liðinu, en þeir náðu afar vel saman í tveimur síðustu deildarleikjum United. Wayne Rooney er síðan fremstur.
Hjá heimamönnum er Ross Barkley á miðjunni, en fremstu er Romelu Lukaku sem hefur þá Steven Naismith og Kevin Mirallas með sér.

Byrjunarlið Everton: Howard, Coleman, Distin, Stones, Baines, McCarthy, Barry, Barkley, Mirallas, Naismith, Lukaku.
Byrjunarlið Manchester United: De Gea, Jones, Evans, Smalling, Buttner, Carrick, Fletcher, Nani, Kagawa, Mata, Rooney.
Athugasemdir