banner
   sun 20. apríl 2014 16:30
Daníel Freyr Jónsson
Messi fær nýjan samning hjá Barcelona
Lionel Messi.
Lionel Messi.
Mynd: Getty Images
Framtíð Lionel Messi liggur hjá Barcelona og verður honum fljótlega boðinn nýr samningur hjá félaginu.

Þetta fullyrðir forseti félagsins, Josep Bartomeu, en orðrómur eru uppi um að Messi gæti verið á förum frá félaginu eftir tímabil mikilla vonbrigða.

Á síðustu tveimur vikum hefur Barcelona dottið úr Meistaradeildinni, tapað bikarúrslitaleik og dottið niður í þriðja sæti deildarinnar og hefur Messi legið undir harðri gagnrýni undanfarnar vikur.

,,Þetta er ósanngjarnt gagnvart Messi. Hann hefur gefið þessu félagi svo mikið og mun halda því áfram," sagði Bartomeu.

,,Það er því enginn vafi um að hann muni leiða þetta félag áfram í framtíðin. Við viljum bæta samning hans því hann á það skilið."
Athugasemdir
banner
banner
banner