Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 20. apríl 2014 14:00
Daníel Freyr Jónsson
Micah Richards til Napoli?
Micah Richards.
Micah Richards.
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Napoli er sagt fylgjast grannt með gangi mála hjá varnarmanninum Micah Richards, leikmann Manchester City.

Þessi 25 ára gamli leikmaður hefur fengið fá tækifæri undir stjórn Manuel Pellegrini og lítur út fyrir að hann verði á förum frá uppeldisfélagi sínu í sumar.

Napoli hefur verið að leita að varnarmanni til að bæta við leikmannahópinn í sumar til að geta gert atlögu að meistaratitlinum á næstu leiktíð. Hafa þeir Thomas Vermaelen og Ezequiel Garay meðal annars verið orðaðir við félagið.

Liverpool hefur einnig áhuga á Richards er hann talinn kosta um 11 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner