sun 20. apríl 2014 13:26
Daníel Freyr Jónsson
Suarez: Við munum halda ró okkar
Mynd: Getty Images
Luis Suarez, framherji Liveprool, segir að liði muni ekki fara á taugum á lokasprettinum í úrvalsdeildinni.

Liverpool vann í dag 3-2 sigur á Norwich á útivelli og var það 11. sigur liðsins í röð. Titilinn er í höndum liðsins.

,,Við erum ánægðir því þessi þrjú stig eru mikilvæg, við lögðum hart að okkur og þeir eru að berjast um að falla ekki niður um deild," sagði Suarez eftir sigurinn.

Suarez skoraði sjálfur annað mark Liverpool og var það hans þrítugasta mark í deildinni í vetur.

,,Það er mikilvægt fyrir sjálfan mig en liðið er á toppnum og það er aðalatriðið. Í fótbolta veit maður aldrei hvað getur gerst. Við munum halda ró okkar og einbeita okkur að næsta leik gegn Chelsea."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner