Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 20. apríl 2014 14:58
Daníel Freyr Jónsson
Svíþjóð: Kristinn Steindórs með sigurmark Halmstad
Kristinn Steindórsson skoraði sigurmark Halmstad.
Kristinn Steindórsson skoraði sigurmark Halmstad.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Steindórsson reyndist hetja Halmstad þegar liðið lagði Helsingborg á heimavelli, 2-1, í sænsku deildinni í dag.

Var þetta fyrsti sigur Halmsta á tímabilinu, en Kristinn Steindórsson gerði sigurmark liðsins í upphafi síðari hálfleiks.

Staðan var 1-1 þegar Kristinn skoraí á 49. mínútu.

Kristinn lék allan leikinn með Halmstad, líkt og framherjinn Guðjón Baldvinsson.

Þá gerðu Kalmar og IFK Gautaborg 1-1 jafntefli. Hjálmar Jónsson sat allan tímann á varamannabekk Gautaborg.
Athugasemdir
banner
banner