„Það eru sjö heimaleikir hjá meistaraflokkum karla og kvenna í maí og við viljum auðvitað losna við að gera völlinn að einhverju svaði," segir Ólafur Geir Magnússon í meistaraflokksráði Fylkis.
Fylkir skoðar það að biðja Breiðablik um að skipta á heimaleikjum en liðin eiga að mætast í fyrstu umferð í Lautinni þann 3. maí.
„Völlurinn er að taka miklum breytingum dag frá degi en ætli Kópavogsvöllur sé ekki svona tveimur vikum á undan. Við erum að ræða möguleika en það er ekkert ákveðið í þessum efnum."
Mögulegt er að skipt verði á heimaleikjum en þá myndu liðin eigast við í Árbænum mánudaginn 20. júlí en leika á Kópavogsvelli í fyrstu umferð.
Athugasemdir