Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 20. apríl 2015 16:11
Arnar Daði Arnarsson
Hallgrímur Mar ekki með í byrjun móts
Hallgrímur Mar Steingrímsson.
Hallgrímur Mar Steingrímsson.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Hallgrímur Mar Steingrímsson verður ekki með Víkingi í byrjun Pepsi-deildarinnar en hann er að fara í speglun á vinstra hné.

Búist er við því að batinn taki um fjórar vikur.

Hallgrímur fór í aðgerð í byrjun árs en hún dugði ekki til og hefur hann ekki spilað síðan í janúar.

Hann gekk í raðir Víkings í október eftir að hafa leikið með KA undanfarin ár.

Síðar í vikunni verður Hallgrímur í ítarlegu viðtali hér á síðunni.
Athugasemdir
banner
banner