Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 20. apríl 2015 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Myndband: Aðdáunarverð klippa í velsku deildinni
Mynd: Getty Images
Lee Beattie, leikmaður Prestatyn í velsku deildinni, er ekki þekktasta nafnið í boltanum en mark sem hann skoraði gegn Bangor City er að fara eins og eldur um sinu á netheimum.

Prestatyn tapaði fyrir Bangor City, 3-1 en þrátt fyrir tapið voru áhorfendur enn að átta sig hvernig Beattie fór að því að skora þetta magnaða mark.

Hann skoraði með fallegri klippu rétt fyrir utan teig en hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.

Beattie á möguleika á að vera tilnefndur til Puskas-verðlaunanna. Það hlýtur bara að vera!


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner