Kári hefur undanfarna daga fengið liðsstyrk fyrir átökin í 3. deild karla í sumar.
Kantmaðurinn Ólafur Valur Valdimarsson er kominn á láni frá ÍA en skagamenn geta kallað hann til baka í sumar.
Miðju og varnarmaðurinn Trausti Örn Þórðarson er einnig kominn til Kára en hann hefur spilað með KF síðan árið 2011.
Miðjumaðurinn Halldór Geir Heiðarsson er síðan kominn til Kára frá Val.
Kári hefur verið í stuði á undirbúningstímabilinu undir stjórn Sigurðar Jónssonar. Kári sigraði C-deild Fótbolta.net mótsins og er í undanúrslitum í C-deild Lengjubikarsins.
Athugasemdir