Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 20. apríl 2015 12:38
Elvar Geir Magnússon
Silva ekki með brotið kinnbein
Mynd: Getty Images
David Silva braut ekki kinnbein í 2-0 sigrinum gegn West Ham.

Óttast var að spænski landsliðsmaðurinn yrði lengi frá eftir olnbogaskot Cheikhou Kouyate.

Eftir rannsóknir á sjúkrahúsi er ljóst að kinnbein Silva er ekki brotið og þessi 29 ára leikmaður gæti spilað í ensku úrvalsdeildinni gegn Aston Villa næsta laugardag.

City er í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner