fim 20. apríl 2017 14:30
Magnús Már Einarsson
Draumaliðsdeild Azazo - Hallbera velur sitt lið
Lið Hallberu.  Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Lið Hallberu. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.
Mynd: Draumaliðsdeild Azazo
Skráning er í fullum gangi í Draumaliðsdeild Fótbolta.net og Azazo. Keppni í Pepsi-deild kvenna hefst eftir viku og hægt er að búa til lið fram að þeim tíma.

Hallbera Guðný Gísladóttir gaf fullt af stigum í leiknum í fyrra í liði Breiðabliks.

Hallbera gekk í vetur í raðir Djurgarden í Svíþjóð og hún tekur því sjálf þátt í Draumaliðsdeildinni í sumar. Hér að neðan má sjá lið hennar.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!


Í markinu er Sonný Lára. Segir sig sjálft, hún elskar clean sheet.

Vörnin samanstendur af miklum reynsluboltum sem eiga örugglega eftir að skila sínu. Renydar lúmsk hætta á mínusstigum fyrir spjöld hjá þessum leikmönnum.

Á miðjunni er ég að vinna með unga og efnilega leikmenn í bland við reynslu og gæði. Þarna eru leikmenn sem eru líklegir til þess að vera bestu og efnilegustu menn deildarinnar auk þess að skila slatta af mörkum og stoðsendingum.

Framlínan er svo að fara að skila mér a.m.k 20 mörkum. Tvær sjóðheitar markavélar.
Athugasemdir
banner
banner