Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 20. apríl 2017 17:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kaleo á lagalistanum á Old Trafford fyrir leik
Kaleo er að gera góða hluti.
Kaleo er að gera góða hluti.
Mynd: Getty Images
Íslenska hljómsveitin Kaleo er að gera góða hluti út í heimi.

Mörg lög með þeim hafa náð vinsældum, en eitt af þeim vinsælli er lagið "Way Down We Go". Bardagakappinn Gunnar Nelson gengur meðal annars í búrið við lagið, en hann breytti fyrir stuttu.

Í kvöld mun það hljóma á Old Trafford fyrir leik Manchesters United og Anderlecht í Evrópudeildinni; gaman af því!

Lagið er á lagalista ásamt mörgum öðrum. Hér að neðan má sjá lagalistann í heild sinni í tísti frá Manchester United.

Leikur Man Utd og Anderlecht hefst kl. 19:05, en hann er sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þetta er seinni leikur liðanna í 8-liða úrslitum, en fyrri leikurinn endaði í 1-1 jafntefli.





Athugasemdir
banner
banner
banner