Belgíska liðið Anderlecht mætir Manchester United í Evrópudeildinni í kvöld. Leikmenn Anderlecht nýta tímann vel í Manchester.
Fyrri leikurinn í Belgíu fór 1-1 og það er því allt opið í kvöld; allt getur gerst. Það verður spennandi að sjá hvernig fer, en leikurinn í kvöld fer fram á Old Trafford, glæsilegum heimavelli Man Utd.

Leikmenn Anderlecht eru mættir til borgarinnar, en þeir ákváðu að taka létta aukaæfingu í Castlefield-garðinum í Manchester.
Þetta var tekið upp á myndband af stuðningsmanni Man Utd sem óskaði þeim góðs gengis fyrir leikinn í kvöld.
Hér að neðan má sjá myndband af þessu, en leikur Man Utd og Anderlecht hefst kl. 19:05 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
@ManUtd @MENnewsdesk Anderlecht training in Castlefield for tonight's game!! #manchester pic.twitter.com/hgFMg8EhbJ
— RobP (@robpim1982) April 20, 2017
Athugasemdir