Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 20. apríl 2018 23:00
Ingólfur Stefánsson
Carvalhal: Guardiola er einn af guðum fótboltans
Mynd: Getty Images
Carlos Carvalhal stjóri Swansea hefur náð frábærum árangri með liðið í vetur og er nálægt því að bjarga liðinu frá falli. Hann hefur lífgað upp á ensku úrvalsdeildina með skemmtilegum ummælum eftir að hann tók við liðinu í desember.

Swansea eru í sautjánda sæti deildarinnar með 33 stig, fjórum stigum frá fallsæti.

Þeir mæta nýkrýndum Englandsmeisturum Manchester City á sunnudaginn og Carvalhal nýtti tækifærið á blaðamannafundi fyrir viðureign liðanna til þess að hrósa Pep Guardiola stjóra liðsins.

„Pep er einn af guðum fótboltans. Hann er magnaður stjóri og hans verður minnst fyrir að hafa breytt leiknum."

„Hann hefur ítrekað sannað sig með fallegum fótbolta áður. Núna er hann að gera það sama hjá Manchester City. Það héldu margir að honum myndi mistakast á Englandi en hann hefur afsannað það."
Athugasemdir
banner
banner