fös 20. apríl 2018 21:03
Ingólfur Stefánsson
Mjólkurbikarinn: Endurkoma Leiknis gegn KH - Öruggt hjá HK og Hetti
Ásgeir Marteinsson skoraði þrjú
Ásgeir Marteinsson skoraði þrjú
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fimm leikjum er lokið í Mjólkurbikarnum. Ásgeir Marteinsson skoraði þrjú mörk í öruggum sigri HK á Álftanes.

Leiknismenn lentu í vandræðum gegn KH en KH komust tveimur mörkum yfir í leiknum. Leiknismenn jöfnuðu leikinn með mörkum sitthvoru megin við hálfleikinn. Sævar Atli Magnússon tryggði þeim svo 3-2 sigur með marki á 75. mínútu.

Þróttur Reykjavík vann Vængi Júpíters 2-0 með tveimur mörkum í síðari hálfleik.

Þá vann Höttur nágranna sína í Huginn 3-0 á Egilsstöðum. Sæbjörn Guðlaugsson skoraði 2 mörk en Petar Mudresa skoraði einnig.

Nú er í gangi framlenging hjá Gróttu og Selfossi. Þá er hálfleikur í viðureign Þrótts Vogum og Víðis en þar leiðir Víðir 1-0.

HK 5 - 0 Álftanes
1-0 Ásgeir Marteinsson ('13 )
2-0 Hákon Þór Sófusson ('51 )
3-0 Ásgeir Marteinsson ('72 )
4-0 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('83 )
5-0 Ásgeir Marteinsson ('85 )

KH 2 - 3 Leiknir R.
1-0 Gunnar Francis Schram ('40 )
2-0 Kolbeinn Kárason ('42 )
2-1 Sólon Breki Leifsson ('45 )
2-2 Aron Daníelsson ('47 )
2-3 Sævar Atli Magnússon ('75 )

Vængir Júpíters 0-2 Þróttur R.
0-1 Sjálfsmark (67')
0-2 Daði Bergsson (75')

Höttur 3-0 Huginn
1-0 Sæbjörn Guðlaugsson (45')
2-0 Petar Mudresa (65')
3-0 Sæbjörn Guðlaugsson (75')

Kórdrengir 0-2 Njarðvík
Markaskorara vantar
Athugasemdir
banner
banner
banner