Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   fös 20. apríl 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn um helgina - Barca mætir Sevilla í úrslitaleik
Mynd: Getty Images
Sevilla spilar við Barcelona í úrslitaleik spænska bikarsins á laugardaginn. Leikurinn hefst klukkan 19:30.

Barcelona er aðeins fjórum stigum frá því að tryggja sér Spánarmeistaratitilinn þegar fimm umferðir eru eftir. Því verður öll einbeiting leikmanna á úrslitaleiknum eftir tap gegn Roma í Meistaradeildinni.

Sevilla hefur gengið skelfilega undanfarnar vikur og er liðið þremur stigum frá evrópudeildarsæti. Sevilla sló Atletico Madrid og Leganes út en Barcelona er búið að fara í gegnum Celta Vigo, Espanyol og Valencia.

Liðin mætast á Wanda Metropolitano, heimavelli Atletico Madrid.

Deportivo La Coruna þarf sigur á útivelli gegn Leganes í kvöld. Deportivo er sjö stigum frá öruggu sæti í deild.

Valencia getur jafnað Real Madrid á stigum er liðið heimsækir Celta Vigo á laugardaginn og Girona getur komist nær evrópudeildarsæti með sigri gegn Espanyol á sunnudaginn.

Atletico Madrid mætir Real Betis, sem er búið að vinna sex leiki í röð, á sunnudagskvöldið. Athletic Bilbao og Levante eigast við í síðasta leik helgarinnar á mánudagskvöldið.

Úrslitaleikur í bikar
Laugardagur:
19:30 Sevilla - Barcelona

Deild
Föstudagur:
19:00 Leganes - Deportivo La Coruna

Laugardagur:
11:00 Eibar - Getafe
14:15 Celta Vigo - Valencia

Sunnudagur:
10:00 Girona - Espanyol
14:15 Malaga - Real Sociedad
16:30 Las Palmas - Alaves
18:45 Atletico Madrid - Real Betis

Mánudagur:
19:00 Athletic Bilbao - Levante
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 31 24 6 1 67 20 +47 78
2 Barcelona 31 21 7 3 62 34 +28 70
3 Girona 31 20 5 6 63 39 +24 65
4 Atletico Madrid 31 19 4 8 59 36 +23 61
5 Athletic 31 16 9 6 51 29 +22 57
6 Real Sociedad 31 13 11 7 45 33 +12 50
7 Valencia 31 13 8 10 34 32 +2 47
8 Betis 31 11 12 8 38 37 +1 45
9 Getafe 31 9 12 10 37 43 -6 39
10 Villarreal 31 10 9 12 49 54 -5 39
11 Osasuna 31 11 6 14 36 44 -8 39
12 Las Palmas 31 10 7 14 29 35 -6 37
13 Sevilla 31 8 10 13 39 44 -5 34
14 Alaves 31 8 8 15 26 38 -12 32
15 Mallorca 31 6 13 12 25 36 -11 31
16 Vallecano 31 6 13 12 25 38 -13 31
17 Celta 31 6 10 15 33 46 -13 28
18 Cadiz 31 4 13 14 21 41 -20 25
19 Granada CF 31 3 8 20 32 60 -28 17
20 Almeria 31 1 11 19 30 62 -32 14
Athugasemdir
banner
banner
banner