Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 20. apríl 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Stórleikur í Dortmund
Mynd: Getty Images
Það eru fjórar umferðir eftir af þýsku deildinni og er mikil spenna um ýmis umspilssæti.

Borussia Mönchengladbach mætir Wolfsburg í kvöld og þurfa bæði lið sigur til að ná sínum markmiðum.

Gladbach hefur dregist afturúr og er sex stigum frá evrópudeildarsæti á meðan Wolfsburg er í þriggja liða fallbaráttu.

Eintracht Frankfurt og Hertha Berlin eigast við í evrópudeildarbaráttunni á laugardaginn á sama tíma og Leipzig og Hoffenheim berjast um tækifæri til að komast í meistaradeildarbaráttu.

Aron Jóhannsson gæti verið í liði Werder Bremen sem heimsækir Stuttgart og lokar Borussia Dortmund laugardeginum með stórleik gegn Bayer Leverkusen.

Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3 en liðin eru jöfn í 3-4. sæti og eru að reyna að forða sér frá evrópudeildarsætunum.

Alfreð Finnbogason er tæpur en gæti fengið að spila er Augsburg mætir fallbaráttuliði Mainz í beinni útsendingu á sunnudaginn. Að lokum á botnlið Köln heimaleik við Schalke, sem er nánast öruggt með meistaradeildarsæti.

Föstudagur:
18:30 Gladbach - Wolfsburg

Laugardagur:
13:30 Hannover - Bayern
13:30 Hamburger - Freiburg
13:30 Frankfurt - Hertha Berlin
13:30 Leipzig - Hoffenheim
13:30 Stuttgart - Werder Bremen
16:30 Dortmund - Leverkusen (Stöð 2 Sport 3)

Sunnudagur:
13:30 Augsburg - Mainz (Stöð 2 Sport 4)
16:00 Köln - Schalke
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 30 25 5 0 75 20 +55 80
2 Bayern 30 21 3 6 87 37 +50 66
3 Stuttgart 30 20 3 7 68 36 +32 63
4 RB Leipzig 30 18 5 7 69 34 +35 59
5 Dortmund 30 16 9 5 58 35 +23 57
6 Eintracht Frankfurt 30 11 12 7 46 40 +6 45
7 Freiburg 30 11 7 12 42 53 -11 40
8 Augsburg 30 10 9 11 48 49 -1 39
9 Hoffenheim 30 11 6 13 53 60 -7 39
10 Heidenheim 30 8 10 12 43 52 -9 34
11 Werder 30 9 7 14 38 50 -12 34
12 Gladbach 30 7 10 13 53 60 -7 31
13 Wolfsburg 30 8 7 15 35 50 -15 31
14 Union Berlin 30 8 5 17 26 50 -24 29
15 Mainz 30 5 12 13 31 48 -17 27
16 Bochum 30 5 12 13 34 60 -26 27
17 Köln 30 4 10 16 23 53 -30 22
18 Darmstadt 30 3 8 19 30 72 -42 17
Athugasemdir
banner
banner