Skráning er í fullum gangi fyrir Draumaliðsdeild Eyjabita en nú er vika í að Pepsi-deildin hefjist. Hér að neðan má sjá þá ellefu leikmenn sem eru dýrastir í leiknum í ár.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Steven Lennon (FH) - 11.5 milljónir. Lennon var næststigahæstur í Draumaliðsdeildinni í fyrra á eftir Andra Rúnari Bjarnasyni með 132 stig. Skorar og leggur upp.
Tobias Thomsen (Valur) - 11.5 milljónir. Hefur gjörsamlega raðað inn mörkum í Valstreyjunni í vetur.
Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur) 11.5 milljónir. Stigakóngurinn í Draumaliðsdeildinni 2016 er mættur aftur á svæðið.
Hilmar Árni Halldórsson (Stjarnan) - 11 milljónir. Eitraður spyrnumaður sem var þriðji stigahæsti leikmaður leiksins í fyrra með 130 stig.
Óskar Örn Hauksson (KR) 10.5 milljónir. Hefur sjaldan svikið kaupendur í Draumaliðsdeildinni. Skorar og leggur upp mörk á hverju tímabili.
Geoffrey Castillion (FH). 10 milljónir. 11 mörk í 17 leikjum með Víkingi R. í fyrra. Hvað gerir Geoffrey með FH?
Atli Guðnason (FH) - 9.5 milljónir. Hefur skilað miklu magni af stigum í Draumaliðsdeildinni í gegnum tíðina.
Gísli Eyjólfsson (Breiðablik) - 9.5 milljónir. Bestur hjá Blikum í fyrra. Verður í lykilhlutverki í sumar.
Athugasemdir