Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 20. maí 2013 22:03
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild karla: Úrslit fyrstu umferðar B-riðils
Mynd: Leiknir - Brandur
Fyrsta umferð B riðils í 4. deild karla var í dag og lauk deginum með sannfærandi sigrum Skínanda, Berserkja og KB.

Garðbæingarnir í Skínanda lögðu Kormák/Hvöt á Samsung vellinum með fjögurra marka sigri.

Karel Sigurðsson skoraði þá öll mörk Berserkja gegn Snæfell/Geislanum á Víkingsvelli í 3-0 sigri, en KB lagði KH með fimm mörkum gegn einu á Hlíðarenda í lokaleik dagsins.

Úrslit dagsins má sjá hér fyrir neðan, en upplýsingarnar eru fengnar frá vefsíðu Úrslit.net.

Skínandi 4 - 0 Kormákur/Hvöt
1-0 Sigurvin Dúi Bjarkason ('25, sjálfsmark)
2-0 Björn Öder Ólason ('37)
3-0 Baldur Bragi Baldursson ('55)
4-0 Halldór Bjarneyjarson ('79)

Berserkir 3 - 0 Snæfell/Geislinn
1-0 Karel Sigurðsson ('25)
2-0 Karel Sigurðsson ('60)
3-0 Karel Sigurðsson ('61)

KH 1 - 5 KB
1-0 Kristófer Þorgrímsson ('21)
1-1 Höskuldur Agnar Þorvarðarson ('52)
1-2 Stefán Ingi Gunnarsson ('60)
1-3 Andri Stefánsson ('65, víti)
1-4 Sigurður Kristján Nikulásson ('76)
1-5 Birkir Björnsson ('89)
Rautt spjald: Baldur Þórólfsson, KH ('62)
Slapp
banner
banner