Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 20. maí 2013 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Allardyce vill fá Andy Carroll til West Ham í sumar
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri West Ham United á Englandi, vill ólmur kaupa enska framherjann Andy Carroll frá Liverpool.

Carroll, sem er 24 ára gamall, skoraði 7 mörk í 23 leikjum fyrir West Ham á tímabilinu, en hann var á láni frá Liverpool.

Hann var einn besti leikmaður vallarins er West Ham vann Reading með fjórum mörkum gegn tveimur og vill Allardyce ólmur halda leikmanninum hjá félaginu.

,,Vonandi var þetta ekki hans síðasti leikur fyrir félagið. Ég held að allir viti að við viljum fá hann endanlega í okkar raðir. Við verðum að leysa það með Liverpool og vonandi verður það að veruleika," sagði Allardyce.
Slapp
banner
banner
banner