,,Menn mættu bara ekki til leiks í fyrri hálfleik og við vorum heppnir að lenda ekki fleiri mörkum undir," sagði Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis eftir 2-2 jafntefli í Keflavík í kvöld.
,,Við mætum spræku Keflavíkurliði og menn virtust ekki með hausinn rétt skrúfaðan á í fyrri hálfleik."
,,Ég var hundsvekktur með liðið og menn voru svekktir með sjálfa sig. Það var þó aðeins meira líf í þessu í lok fyrri hálfleiks og í seinni hálfleik er auðvitað líf í þessu. Ég hefði viljað sjá ennþá meira líf og ennþá meira hungur í að fara heim með öll stigin því tækifærin voru í boði."
Nánar er rætt við Ásmund í sjónvarpinu að ofan en beðist er afsökunar á hljóðtruflunum.























