Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   mán 20. maí 2013 09:00
Magnús Már Einarsson
Fantasy deild Fótbolta.net: Markaðurinn lokar klukkan 16
Guðjón Árni verður í leikbanni hjá FH á morgun.
Guðjón Árni verður í leikbanni hjá FH á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Líkt og í fyrra er Fótbolti.net með sérstaka Fantasy deild í kringum Pepsi-deildina í sumar en deildin er komin í loftið á slóðinni fantasy.fotbolti.net. Um er að ræða opinbera Fantasy deild Toppfótbolta, samtaka félaganna í efstu deild.

Ennþá er hægt að skrá ný lið til keppni áður en 4. umferðin hefst en markaðurinn lokar klukkan 16:00 í dag.

Leikurinn er mjög svipaður og Fantasy leikurinn í ensku úrvalsdeildinni sem hefur notið mikilla vinsælda hér á landi undanfarin ár.

Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.

Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.

Hægt er að skrá lið til leiks og gera breytingar á liðinu sínu til klukkan 16:00 í dag þegar fjórða umferðin hefst. 8800 manns hafa skráð lið sitt til leiks, taktu þátt!

Stigagjöfin að þessu sinni verður samtengd við textalýsingakerfi Fótbolta.net og uppfærslan því mun sneggri en í fyrra

Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Slapp
banner
banner