Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 20. maí 2013 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Di Canio: Ekki hægt að spila manni sem er enn að ranka við sér
Paolo Di Canio, knattspyrnustjóri Sunderland á Englandi, er allt annað en sáttur með enska varnarmanninn Phil Bardsley þessa stundina, en hann dó áfengisdauða í spilavíti nokkrum dögum fyrir lokaleik liðsins í ensku úrvalsdeildinni.

Bardsley, sem er 27 ára gamall, ákvað að fagna því með félögum sínum er ljóst var að Wigan væri fallið niður um deild, sem þýddi þá það að Sunderland hélt sæti sínu.

Hann fór með þeim á spilavíti sem endaði með því að Bardsley dó áfengisdauða, en myndir af atvikinu voru birtar í breskum fjölmiðlum í gær. Þetta var fljótt að spyrjast út, en Di Canio ákvað að taka Bardsley úr hópnum fyrir leik liðsins gegn Tottenham Hotspur.

,,Ég sá myndirnar á vefsíðu og nokkrum mínútum seinna var hann ekki í hópnum gegn Tottenham. Hvernig get ég spilað manni sem er enn að ranka við sér þremur eða fjórum dögum eftir þetta?," sagði Di Canio.

,,Ég vil koma mjög svo skýrum skilaboðum á framfæri. Það er engin afsökun fyrir því hvernig hann hagaði sér. Þeir fóru út á lífið af því að Wigan féll niður um deild og við héldum sæti okkar."

,,Ég hefði skilið þetta ef við hefðum unnið Meistaradeildina eða FA-bikarinn, en við verðum að virða klúbbinn og stuðningsmennina."

,,Ég hélt að Swindon hefði það slæmt með hrokafulla og barnalega fótboltamenn af því þeir voru ekki með reynsluna af því að vera í efstu deild, en ég verð að segja það að þegar ég tók við Sunderland þá var aginn og umhverfið miklu verra."

,,Þessu hef ég tekið eftir á undanförnum vikum og við þurfum að breyta þessu öllu saman,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner
banner