,,Eins og leikurinn spilaðist þá fannst mér við alls ekki eiga skilið að tapa en svona er þetta í fótboltanum," sagði Ejub Purisevic eftir tap Víkings Ólafsvíkur gegn Þór á Akureyri í kvöld.
,,Annað liðið notaði færið sem það fékk og skoraði mark en við náðum ekki að nýta okkur það sem við bjuggum til og þess vegna fór þetta svona. Við vorum betra liðið í báðum hálfleikum en það sorglegasta í þessu er að við fengum þetta mark á okkur sem við áttum ekki skilið."
,,Við stóðum okkur vel varnarlega fyrir utan einhverjar þrjátíu sekúndur og liðið sjálft var ágætt. Leikmenn sjálfir gætu bætt sig eitthvað sem einstaklingar og það kemur bara í ljós á æfingum hvað við lögum og vonandi gagnast það í næsta leik."
"Ég skildi ekki af hverju ég fékk tiltal, ég var bara að kalla á mína menn. Dómarinn var fínn, við töpuðum alls ekki útaf honum. Auðvitað eru alltaf einhverjar athugasemdir um einhverja dóma."
,,Það voru einhver smá meiðsl hér og smá meiðsl þar en ég held við munum ekki sjá mörg ný andlit í næsta leik. Einar byrjaði þennan leik og Kaspars hefur byrjað hina leikina. Þetta kemur allt bara í ljós í næsta leik. Sjáum bara til hvernig allt gengur."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.






















