Hans Steinar Bjarnason fékk fjóra rétta þegar hann spáði í leiki þriðju umferðar í Pepsi-deildinni.
Fjórða umferðin í deildinni fer fram í dag og á morgun. Eysteinn Húni Hauksson þjálfari Hattar spáði í þá leiki fyrir Fótbolta.net.
Fjórða umferðin í deildinni fer fram í dag og á morgun. Eysteinn Húni Hauksson þjálfari Hattar spáði í þá leiki fyrir Fótbolta.net.
Þór 1 - 1 Víkingur Ó. (17:00 í dag)
Spennandi viðureign. Annað hvort liðið jafnar 1-1 í lokin á barnings-leik. Mikil stemning og læti og hver einasta ákvörðun dómara verður umdeild.
ÍBV 1 - 0 KR (17:00 í dag)
Talandi um spennandi leiki. Goðsagnir í brúnni hjá báðum liðum, sem hafa farið frábærlega af stað. Markmenn liðanna gefa ekki miklar vonir um markaveislu. Ef það verður rok, vinnur ÍBV, annars KR. Sjá veðurspá. 1-0 fyrir ÍBV. Skora með vindi. Fer af varnarmanni og í netið.
Keflavík 2 - 1 Fylkir (19:15 í dag)
Jóhann Birnir vs. Haukur Ingi hlýtur alltaf að verða skemmtilegt. Ef ekkert mjög óvænt gerist, þá verður Jói inni á, en Haukur ekki og því fer þetta væntanlega 2-1 fyrir Keflavík. Einnig hugsanlegt að þetta fari einhvern veginn allt öðruvísi, öfugt við aðrar spár mínar hér í dag, sem eru algjörlega skotheldar.
ÍA 1 - 0 Fram (19:15 á morgun)
Andi eins af mörgum gullaldarliðum skagamanna (1983-84) svífur yfir bollanum sem ég nota í allar mínar spár hér á Café Valný, í formi Árna Sveinssonar og Guðbjörns Tryggvasonar. Skaginn vinnur sinn fyrsta sigur í dag, eru skilaboðin. Það verður tæpt, 1-0 enda Framarar engin lömb að leika við.
Stjarnan 1 - 3 Valur (19:15 á morgun
Enn einn stórleikurinn. Dragan Kazic laumar einhverjum lykilupplýsingum til Magga Gylfa og þeir klára þetta.
Breiðablik 2 - 0 FH (20:00 á morgun)
Eins og oft áður í leikjum Breiðabliks reynist „omstillings-fasinn“ afdrifaríkur. Tvö frábær lið. Breiðablik kemst í 1-0, FH sækir grimmt, en Breiðablik skorar annað í lokin.
Eldri spámenn:
Hans Steinar Bjarnason (4 réttir)
Tómas Þór Þórðarson (4 réttir)
Þórhallur Dan Jóhannsson (3 réttir)


